(Þetta er svolítið langt, en bare with me hérna. kúl shit)
looooooooooool ég var að telja bloggin mín saman og þetta seinasta blogg, verður blogg nr. 100. Örlög?
sem þýðir að ég bloggaði 10 sinnum í mánuði að meðaltali, blogg þriðja hvern dag. geri aðrir betur.
Ég ætla allavegana að skrifa mitt seinasta blogg á tomgreen, maður. maður.
Ég ætlaði aldrei að vera með þessa síðu lengur eftir að ég kæmi heim af því að ég mundi aldrei nenna því, en ég hugsa að ég taki svona nett "remeniss" um fkn dk, og gera eitt leiðinlegt blogg af því að ég er happý gaur í dag. grátandi í lyklaborðið. grííín. no way, ég er aðkoma heim eftir fjóra daga og ekkert svona lygi, koma fyrr flipp eins og seinast. Sem var í okt. váá´það er langt síðan. shit hvað þetta verður lélegt en anyways. þetta er líka nett fyrir mig, en fokk mig. áfram fjöldinn. no way.
ég nenni ekki að vera með eitthvað:ég kom í ágúst og saug lim.
Ég semsagt eyddi svona ca. fyrstu þremur mán í að gera mest lítið, koma mér fyrir og lyfta. ég man samt eiginlega ekkert eftir því. hvað um það.
svo beilaði ég líka á köben 2.nóv með ebbu og önnu, en ég tek það á mig. fokk það.
svo kom fólk út í heimsókn, fyrstir voru Blösser og Árni B. ég held að eitt gott myndband sé bara best til að lýsa því.
Hver er eiginlega þessi með sixpensarann? og hver er það sem heldur á myndavélinni? þetta eru menn sem ég hitti eftir nokkra daga.
Hahaha ég er ekki búinn að horfa á þetta lengi. Svooo gott
Svo fóru þeir samt, og tommi og helgi komu. Það var virkilega nice og Helgi var hérna langt fram yfir áramót og við djömmuðum og gerðum hitt og þetta. Það var fkn nice og með því eftirminnilegra.
Svo kom nú alveg slatti af tíma sem að það gerðist fátt annað en að ég pumpaði brjálað stál og spilaði bolta og hafði gaman af lífinu, ekki með miklar áhyggjur af skólanum, eins og ég reyndar var ekkert að hafa allt þetta ár, en hvað um það.
Svo kom apríl, og komu þá ekki Feitilíus og Stefán nokkur Jó, og með þeim í för til allrar lukku var Siguróli og hans bróðir. Það var virkilega góð tilbreyting frá hversdagsleikanum sem var orðinn yfirdrifandi en samt saknar maður hans núna. Ég hugsa að það hefði verið ómögulegt hafa þessa ferð betur hepnnaða, og sáum við meðal annars tvífari Gommans og fleira gott.
Óskar summaði þessa ferð nokkuð vel upp í góðu kommenti, þessu:
Skari Mó skrifar:
Mér fannst leiðinlegt í Danmörku.
Gurrý gaf okkur aldrei að borða. Hún reyndi heldur aldrei að drepa okkur úr ofáti. Nasi nennti aldrei að keyra okkur neitt. Það var vont veður. Bjarni var leiðinlegur. Það var ömurlegt að hitta Óla og heimska bróður hans. Keilan var ekkert skemmtileg og við tókum engar góðar myndir, poolinn var líka hundleiðinlegur. Stebbi talaði dönsku allann tímann og skildi allt sem sagt var við hann. Bjarni leit út eins og fífl við hliðina á honum. Bjarni Jó er jafnvell mjórri núna heldur en þegar hann fór út. Okkur finnst Dirty Sanches leiðinlegir þættir og við horfðum aldrei á þá. Bjarni var alls ekki tæpur á að drepa sjálfan sig í þythokkíinu. Bjarni er mjög kurteis við foreldra sína og er aldrei með skæting.
Hilsen, Bamsiggi Erlings.
Síðan kom eftir það alþjóðlegt mót í handbolta í Kolding, þar sem ég náði að spila einn leik + 2 mín. Eftir það ákvað krossbandið að gefa sig og eftir það hefur verið nettur doði yfir DK-inu, en alltaf mun ég meta þessa seinustu mánuði, þrátt fyrir allt.
Og í dag er 31.maí, seinasta blogg tomgreen, seinasta maí dagur minn í DK, í bili allavegana, seinasta fimmtudagurinn. Skrítið, ekkert smá skrítið. Undarlegt ef þú vilt, en einnig virkilega góð tilfinning að fá að fara heim eftir þennan tíma.
Ég kveð þar af leiðandi tomgreen, kveð DK, þetta er endalok/nýtt upphaf. Eða eitthvað drama.
allavegnaa,
Ég elska ykkur öll og þakka fyrir mig og þakka ykkur fyrir að hafa nennt að fylgjast með mér og mínum í ár.
Assalam Aleikum, ást og kærleikur. (Blösterinn bað mig um að vera væminn, en það er kúl ass shit að vera emó.)
já ætla aðeins að segja frá gærkvöldinu en X-d vann þetta rugl með yfirburðum og þá fer líklega áfengi í búðir hehe en já ég var heima svoa fyrst um kvöldið og var bara að chilla og svo hringdi ég í vin minn og tékkaði á honum og ég hitti hann og við fórum á rúntinn og svo fór hann heim e-ð snemma og ég fór heim og tala við vinkonu mína á msn og hún var fkn drullufull og e-ð og við vorum bara að spjalla í góðum fílingi þar til að annar vinur minn hringir í mig spyr hvort ég vilji koma út og ég geri það og við förum á kosningarvöku á Hótel KEA og þar var mögnuð stemmning og við vorum þar í dágóðann tíma og svo fór hann að vinna í Sjallanum og e-ð ég ætlaði að fara en en fór ekki samt var orðinn of fullur og e-ð rugl og ég fór bara á röltið og svona hitti fólk og fl. og svo talaði ég við vinkonu mína og sagði svona við hey þú veist ég elska þig meira en allt og hún sagði já love you 2 við mig og ég bara þakkaði henni fyrir það og allt en svo fór ég út og já ;) hef það ekki fleira og kveð bara góðar stundir kv. Hómer peace out ;) (L) Elska þig Hildur mín (L)
hann er svo sætur, árna brjánn angantýsson á afmæli í dag. Sonur Angantýs Arnars, nýkominn heim af sjó. Hann má allt, hann á afmæli í dag. Keyrðu mig heim, ég er fullur og fleira sem kemur uppí hugann á manni við að hugsa um hann. mega kærleikur.
Til hamingju með afmælið sæta tútta. Þú reiðst þessu þarna.
ég ætla að byrja á að hrósa Tona fyrir gott komment í seinasta bloggi. honum fer fram, núna þegar nánast ekkert er eftir af Tomgreen.
SVvvvvoo, á Siguróli Magni afmæli í dag, 23.maí, og ég óska sæta litla kubbnum mínum til hamingju með þann merka áfanga að núna geta farið í Sjallann. Klárlega markmið allra manna og stúlkna, enda staðurinn þar sem hlutir gerast. Sbr, pælingu um hluti í seinasta bloggi. Sjallinn er shittið. eeee
Hérna höfum við manninn sjálfan, með einn Kalla í DK. Óli, til hamingju með daginn.
Svo á Árni Brjánn afmæli á morgun, en hann er útá sjó, og kemst ekki á netið til að þakka mér fyrir að hafa sett mynd af honum inná bloggið mitt, svo að árni, ég elska þig.
Allavegana, þá var ég í aðgerð í gær.
Hún gekk svona líka þrusuvel held ég bara, það var komist að því að það var bara krossbandið sem var skemmt, en það var semsagt slitið. Það voru engar taugar, sinar eða liðþófar eða eitthvað annað dót skemmt sem er þrusugott mál. Bara krossbandið, sem er eins og ég sagði mjög gott mál. Eða svona, lán í óláni. Svo komst ég að því eftirá að ég átti ekkert að fá að fara í aðgerð svona snemma, það var einhver kella sem klikkaði svona agalega í skrifmennskunni, og leyfði mér að fara viku á undan í aðgerð. Það er henni að þakka að ég fæ að fara heim 4 jún í staðinn fyrir 11 jún. Þvílíkur maður þessi kvenmaður.
Ég er semsagt með svona risastóra, þroskaheftra spelku sbr. þessa mynd:
Helvítis bloggar.is leyfir mér ekki að setja fleiri myndir hérna inn útaf því að ég skuldu pening, gott að þetta er með seinustu bloggunum mínum.
En ég ætla allavegana ekki að nenna að hafa þetta lengra, næsta blogg verður getraun, seinasta getraun vetrarins, eftir svona 2-3 daga. En allavegana, pillugjöf kallar,
Þá hlakkar mig til að fá símtal frá bróður mínum um hvernig íbúðin er. Hehe, nýja íbúðin mín, hehe lol. Ég að flytja í nýja íbúð.
Allaveagna, þá er ég að fara í aðgerð á næsta þriðjudag og hlakkar alveg þrusutil. Ég á semsagt útaf þessari blessuðu aðgerð sem á eftir að halda mér heima á mínum sæta rassi alla næstu viku, þrjá skóladaga eftir í Danmörku. Það er ekkert smá fatlað. Svo vona ég ennþá að dagsetngin standi við mína heimkomu sem ætti undir öllu heilbrigðu að vera mánudaginn eftir 2 vikur. Annars verð ég brjálaður.
Neinei, þetta er svona huggulegt þessi íbúð. Skemmtilegt símtal. Kaldhæðni dauðans á FM 957.
Hlustaðu á Gym Class Heroes og vertu jafn heillaður og Júlía.
Ég er samt búinn að ákveða mig, og bolurinn sem varð fyrir valinu var sá sem á mundi standa Ég þekki Magga Blö og með mynd af honum með Breezer í báðum og fyrir neðan:" Er Þetta fkn leikskóli?!?"
ég er fyndinn gaur. held ég allavegana.
spurning af hverju hlutir gerast í lífinu, ég veit það ekki. það er kannski af því að ég er ekki jafn trúaður og Árni, en samt trúi ég á mismunandi hluti. Það er mismunun að kenna en samt þýðir það ekki það sama og mismunandi. Munurinn er alltof stór til að velta honum fyrir sér. hvað eru hlutir. hlutir eru fólk sem kýs xD af því að þeim líður vel og vita ekki betur og nenna ekki að hafa fyrir því að skoða hlutina í víðara samhengi. "Æi, pabbi heldur með Liverpool sko, af hverju ekki ég líka?"
álíka gáfulegt og að kaupa sér kynsjúkdóm eða bók um sjálfan sig.
Pælingar um lífið eru ekkert smá leiðinlegar. að velta því fyrir sér af hverju hlutir gerast í lífinu í staðinn fyrir að upplifa þá. fokk krossband. áfram tjahh, líf. Lífið held ég bara. Ef ég væri kaldhæðinn í því sem ég sagði þá væri ég fífl samt.
hugmynd og pæling sem varð að orðum og setningum á blaði.
pældu í því sem ég sagði, no shit.
shit hvað ég nenni ekki að blogga.
ég blogga allavegana ekki á þriðjudaginn, ég finn uppá góðri getraun þegar ég ligg uppdópaður og ógeðslegur eftir aðgerð á þriðjudaginn, veltandi sjálfum mér uppúr sjálfsvorkunn og pælandi í því af hverju hlutir gerast, eins og ég er að gera núna.
Eins og þið væntanlega gátuð lesið útúr seinasta bloggi þá er ég með slitið krossband. Ég fékk að vita það á þriðjudaginn, og við ákváðum hérna að ég mundi bara drífa mig í aðgerðina sem fyrst. Það er vissulega gott við það að vera ekki fastur heima á Íslandi í því heimskulega heilbriðgðiskerfi sem er þar við lýði, og hefði þar af leiðandi örugglega þurft að bíða í nokkra mánuði eftir því að fara í aðgerð. Ég fæ að fara í hana, aðgerðina, strax eftir nokkra daga, og kvíður mig reyndar svolítið fyrir því að fara í þriggja tíma aðgerð og vera svæfður í einhverja tíma. En hvað gerir maður ekki fyrir heilbrigði.
Annars er ég ennþá í svolitlu móki ennþá útaf þessu drasli, en þegar ég var búinn að þerra tárin útaf þessu drasli á þriðjudaginn þá dreif ég mig í gymmið og pumpaði. Þó að þetta sé virkilega skítt þar sem maður var búinn að koma sér inní frjálsar í sumar og búinn að gera skipulag fyrir næsta sumar, og þó að ég fái ekki að vinna næsta sumar, og verði þar af leiðandi voðalega blankur allan næsta vetur, þá er ég ekki að fara að gefast upp útaf þessu og ætla ég að taka Rocky-heimspeki mér til fyrirmyndar. "It ain't about how hard you can hit, it's about how hard you can get hit and keep moving forward"
Þetta er það sem maður á að taka sér til fyrirmyndar í lífinu. Það er bara þannig. No way Jose að ég sé að fara að gefast upp. Ég verð byrjaður að hlaupa aftur í júlí, verð þá kominn með nokkur aukakg eftir gott pump, byrja að æfa handbolta í sept, og verð kominn í æfingahóp hjá mfl áður en næsta ár er búið. Það er bara svo einfalt að það er ótrúlegt.
En allavegana, ég nenni ekki meira af þessu.
Ég var að pæla í að fá mér bol, svona prenta sjálfur á boli-bol, og mig vantar eiginlega hugmyndir að slagorði. Ég var kominn með hugmyndir eins og:
Ég þekki Magga Blö, eða Gunna Blö, og svo mynd af Magga með Breezer í báðum fyrir neðan í staðinn fyrir gamla Ég þekki Ásgeir Kolbeins bolinn minn sem eyðilaggðist í slagsmálum við Snorra skíðavin hans Jóns hérna seinasta sumar.
Ég er með lítið typpi
Pabbi minn er Jónas Helgason
Ég tek 130 í bekk, í staðinn fyrir gamla bolinn minn sem er næstum því ónýtur.
Ef einhver er með fleiri hnyttnar hugmyndir, bið ég þann hinn sama að segja mér frá þeim hugmyndum. Ekki vera hrædd við að vera fyndin. Það er fyndið að vera fyndinn.
Annars kem ég heim 4 júní, eða það fer eftir því hvort að aðgerðin gangi vel, og endurhæfing. Svo lengi sem ég láti ekki lífið í aðgerðinni þá er ég klár. Ég vill óska bróður mínum til hamingju með að vera búinn í prófum. Hann getur farið í Turninn og gert allt brjálað, þó að hann sé djöfull lemstraður eitthvað.
Svo eru stórar fréttir, Skari nokkur Mó, er kominn með myspace síðu. Sá hinn sami og sagði:"Bjarni, ég hata myspace síður. Ef þið viljið sjá hundinn sjálfan að verki, eða BabyStinger-inn, þá endilega farið inná þessa síðu. Hann er líka með svo flott background.
En mig langaði bara að koma þessu frá mér, ég ætla einnig að fá að þakka fyrir stuðning frá hinum og þessu, hann er gjörsamlega ómetanlegur hversu lítill sem hann er.
Ég allavegana fór til móts við Rúmena sem kunna ekki að tala ensku, Ítala sem halda að þeir séu með eiginleika Hasselhoffsins og vanabí bandaríkjamenn frá miðvikudeginum seinasta til laugardags eftirmiðdags. Fimmtudagurinn og Föstudagurinn voru held ég leiðinlegustu dagar lífs míns, leiðinlegri og ógeðslegari heldur en þegar við vorum í unglingavinnunni einn daginn hjá sjúkrahúsinu, þvílíkur dagur.
Svo fór laugardagurinn allur í það að verja einhver "lög" sem við bjuggum til á fim og fös og tók það svo mikið sem 8 klukkutíma. Kúl reyndar að hugsa um að þetta gæti orðið að lögum í EU en það er annað mál. Eða jú, svo tókst mér líka á lau að eyðileggja ljósakrónu og pissa í kókómjólksflösku en ég meina, hver gerir það ekki.
Svo fór ég út að hlaupa áðan í fyrsta skiptið í langan tíma áðan. Það var ekkert smá góð tilfinning að geta hlaupið aftur, í staðinn fyrir að vera fastur með rassgatið við sófann. Svo lauk nú þessum blessuðu kosningum í nótt. Ég nenni ekki að vera með einhvern áróður þó að ég gæti það alveg. Ég las samt blogg hjá meðvituðum manni sem var eins og stolið úr mínum huga.
"Ég þoli heldur ekki þegar fólk segir: Mér líður vel. Af hverju ætti ég að vilja breyta til. Nei nei að sjálfsögðu ekki. Hver ætti mögulega að vilja breyta til þegar honum líður vel, en hvað með aðra? Hvað með fólk sem hefur það ekki fínt? Hvað þá með manninn sem skítur á sig og tapar peningunum sínum? Vill hann virkilega þurfa að face-a það sem litli maðurinn þarf að eiga við? Mér finnst hræðilegt þegar rökin um það að stjórnarandstaðan séu bara að tuða og mótmæla og séu á móti öllu eru dreginn fram í gömlu skúffunni. Að sjálfsögðu eru þau á móti mörgu sem á sér stað! Af hverju í andskotanum eiga þau að halda kjafti og taka það uppí rassgatið þegar gengið er gegn þeirra eigin hugsjónum? Halda menn virkilega að Davíð hefði ekki sagt orð ef hann hefði þurft að sitja í stjórnarandstöðu?"
Ég er ekki frá því að Maggi nokkur Blö hafi einmitt notað þau rök fyrir að kjósa XD, hafi einmitt verið þau að honum líði vel. Ahh.
Þessi hér.
Ekki með Breezer í annarri, heldur báðum.
Neiii ég elska Magga Blö. Hann hefði átt að vera í hóp í dag. Fkn míló. Drullum frekar yfir Orra Ká.
Orri Ká, maðurinn með flotta hárið. Ef einhver nennir að refresh my memory til að segja mér hver er yndisdaman þarna bakvið, þá væri ég glaður.
Ég gerði þetta samt bara til að hressa Magga Blö við.
En allavegana, er ég samt að fara í aðgerð á fimmtudaginn næsta held ég, ég er að fara í viðtal útaf þessu blessaða hné á þriðjudaginn og þareftir verður það ákveðið. Skemmtilegt ótrúlega. Samt ekki jafn gaman og símtalið sem ég fékk í gær, eða símtölin. Það er og var eitthvað sem var fyndið.
Biddu er hann fullur þessi? Nei ég hugsa ekki. Annars elska ég hann líka sko.
Svo eru frjálsar og pump í sumar, ahhh sumar. Já, ég kem heim eftir þrjár vikur að hitta fólkið á myndunum, eða kannski ekki K-ið en allt getur gerst. Kannski lemur hann mig útaf þessari mynd, en það kemur í ljós.
Geðveikt myndavélaflipp í þessu bloggi, ég samt nennti ekki að vera fyndinn í bland við hitt og þetta, bara reyndi að vera fyndinn en það tókst ekki. shit. lélegur gaur
Ég ætla ekki að hafa þetta neitt rosalega drullulangt, en ég ætla samt ekki að koma með hommapunktablogg eins og asni.
Ég er fyndinn gaur.
Ég ætla að biðja Magnús að láta af hendi mitt belti og mitt bindi þegar ég kem heim annars verður ofbeldi, og einnig til bróður míns að láta af hendi brúna beltið mitt. Sérstakt að menn geti ekki hætt að stela af mér hlutum en hvað um það.
Einnig var gaman að heyra frá mönnum líkt og Andra í seinasta bloggi.
En ég er semsagt að fara til Vejle núna á eftir, í fjögurra daga skólaferðalag. Í flippað skemmtilegt roleplay með Rúmenum um Evrópusambandið. Það veðrur örugglega stuð að gera það frá 8-8 í fjóra daga. Og líka yfir helgi. Í staðinn fyrir að fara til köben og missa það yfir júróvision með góðu fólki. Djöfull hata ég Eurovision og samdi Óð til Júróvision og einnig Söngvakeppni Framhaldsskólanna. sem er eftirfarandi:
Mér datt eitt skrítið í hug, að semja ljóð Ljóð sem meikaði ekkert sens en samt alveg massívt sens
Ekkert rím og ekkert sens, en samt samfélagsleg gagnrýni Ekki bara að þetta til til að reyna að vinna söngvakeppnina Þegar ég heyri þennan sora og viðbjóð Þá datt mér í hug að kveikiþráðurinn að táraflóði Þetta er samt ekki texti að ljóði Þetta er orsökin að tilfinningalegu blóði, eða sárum Það er samt eitthvað sem veldur því að það sé eins og heilinn í öllum textahöfundum sé að brenna Jááá tussudrasl, það er Júróvisjón að kenna
Ég elska júróvision.
En ég held að ég sé að fara í þessa skemmtilegu liðþófaaðgerð á mánudaginn eða þriðjudaginn í næstu viku, sem er algjör snilld. Að fá að losna við að taka pillur sem ég fæ svona líka drullumikinn niðurgang af. Og kúkaði á setuna einu sinni við að verða fyrir því. Púllaði eina kakósetu að hætti Brjánsfjölskyldunar. Ekki fjall samt. Helvítis fjallið. Hittu ofaní klósettið!!!
en ég hef alveg fokk lítið að segja fyrir utan þetta, ég neyðist eiginlega til að leggja mig áður en ég fer í klikkað skemmtilegt ferðalag, sem verður samt örugglega betri en kaldhæðnin í mér er að lýsa. Eða var ég kaldhæðinn við að segja þetta, ég veit það ekki. Ég er kannski bara hæðinn. Hæðin. Er stór.
Ef eitthvað er fyndið við World of Warcraft, þá er það þetta. Leroy Jenkins er maðurinn, svo einfalt.
Þvílíkur maður sem ágúst stef er að hafa kennt mér þetta.
"Forgetting God is not a religion, but a spiritual bond
And Jesus is the most quoted prophet in the Qu'ran
They bombed innocent people, tryin' to murder Saddam
When you gave him those chemical weapons to go to war with Iran
This is the information that they hold back from Peter Jennings
cause Condoleeza Rice is just a new age Sally Hemmings"
And I Quote
"They say it's lonely at the top, in whatever you do
You always gotta watch motherfuckers around you
Nobody's invincible, no plan is foolproof
We all must meet our moment of truth"